já ég held að að þetta blogg getir verið eins og tími hjá sálfræðingi. Losa úr huganum hugsanirnar og gera pláss fyrir nýjar. Rannsóknir hafa sýnt að meginhluti hugsana okkar í dag eru hugsanir frá því í gær og einhver smá hluti bætist við á hverjum degi. Þetta er athyglisvert.

ég var einu sinni spurður að þessu: Hvað ef velgengni þín er algjörlega undir sjálfum þér komin? og þá kom næsta spurning: Ertu reiðubúinn að axla þá ábyrgð? þetta fannst mér athyglisvert og fékk mig til að hugsa…… svo rann það á mig ( kallast lost). Þetta er þá ekki ríkisstjórninni að kenna,….. og ekki verðlaginu…. og ekki neikvæðu ættingjunum úppps. Þetta er ein af þeim betri uppgötvunum sem maður hefur gert því þetta þýðir það ég stjórna þessu sjálfur, hamingjunni, innkomunni, velgengninni og öllum pakkanum og öllu því sem miður fer. Þetta þýðir að ef að ég vil að hlutir breytist í mínu lífi þá þarf ég að breytast, og ef að ég vil að hlutir verði betri, þá verð ég að verða betri..

Claim your happiness…

Ein ummæli to “Góð sálfræðiþjónusta”

  1. Jigz sagði

    Ótrúlega sterk innkoma í bloggheiminn.

    Tek hattinn ofan fyrir innkomunni!

Skildu eftir svar