Þú færð það ….
maí 20, 2008
sem þú átt skilið stendur í góðri bók. Það var fleira sem fylgdi þessari setningu því að í kjölfarið kom … ekki það sem þú þarft! Er einhver munur á því ???? Mér datt þetta í hug eftir tómlæti gærdagsins þar sem við Valsmenn mættum til leiks gegn Fylkismönnum og Þurftum á 3 stigum að halda en fengum það sem við áttum skilið… 0 stig. Er þetta ekki oft svona í lífinu ? þurfum við ekki á hinu og þessu að halda? Þurfum á meiri peningum að halda, Þurfum að taka til í garðinum, Þurfum að gera hitt og þurfum að gera þetta. en einhvern veginn fær maður það sem á skilið og það sem maður hefur unnið fyrir en ekki það sem maður þarf. Sagan af sáðmanninum er ein besta dæmisagan um þetta og er einhvern veginn svona:
“Sáðmaður gekk út að sá, 4og þá er hann sáði, féll sumt hjá götunni, og fuglar komu og átu það upp. 5Sumt féll í grýtta jörð, þar sem var lítill jarðvegur, og það rann skjótt upp, því það hafði ekki djúpa jörð. 6Þegar sól hækkaði, visnaði það, og sökum þess að það hafði ekki rætur, skrælnaði það. 7Sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu og kæfðu það. 8En sumt féll í góða jörð og bar ávöxt, sumt hundraðfaldan, sumt sextugfaldan og sumt þrítugfaldan.”
Það er athyglisvert að hjá Sáðmanninum gekk ekki allt upp því sumt lenti á götunni, það gæti verið hugarfarið hjá okkur í leiknum í gær, annað lenti í fuglunum. það gæti táknað erfiða andstæðinga og annað féll í grýttan jarðveg sem gæti táknað spilamennsku okkar í augum þjálfarans… en Sáðmaðurinn hélt áfram að sá fræum og uppskar eins og áður sagði sumt hundraðfallt…
Við Valsmenn verðum að halda áfram að sá og þá fáum við það sem við eigum skilið….
Góð sálfræðiþjónusta
maí 19, 2008
já ég held að að þetta blogg getir verið eins og tími hjá sálfræðingi. Losa úr huganum hugsanirnar og gera pláss fyrir nýjar. Rannsóknir hafa sýnt að meginhluti hugsana okkar í dag eru hugsanir frá því í gær og einhver smá hluti bætist við á hverjum degi. Þetta er athyglisvert.
ég var einu sinni spurður að þessu: Hvað ef velgengni þín er algjörlega undir sjálfum þér komin? og þá kom næsta spurning: Ertu reiðubúinn að axla þá ábyrgð? þetta fannst mér athyglisvert og fékk mig til að hugsa…… svo rann það á mig ( kallast lost). Þetta er þá ekki ríkisstjórninni að kenna,….. og ekki verðlaginu…. og ekki neikvæðu ættingjunum úppps. Þetta er ein af þeim betri uppgötvunum sem maður hefur gert því þetta þýðir það ég stjórna þessu sjálfur, hamingjunni, innkomunni, velgengninni og öllum pakkanum og öllu því sem miður fer. Þetta þýðir að ef að ég vil að hlutir breytist í mínu lífi þá þarf ég að breytast, og ef að ég vil að hlutir verði betri, þá verð ég að verða betri..
Claim your happiness…
kjellinn er kominn á bloggið
maí 18, 2008
Brynjólfsson mættur
maí 14, 2008
Brynjólfsson hefur hér störf von bráðar.